Skotvopn haldlögð
6. janúar 2026
Tveir piltar voru handteknir í Grafarvogi í gærkvöld eftir að tilkynnt var um vopnaða menn í hverfinu. Lögreglan brást skjótt við tilkynningunni og fann svo mennina í heimahúsi. Þar reyndust einnig vera tvö skotvopn, sem lagt var hald á.

Aðilarnir eru báðir innan við tvítugt og var annar færður á Stuðla, en hinn í fangageymslu lögreglunnar. Rannsókn lögreglu beinist m.a. að því hvort piltarnir hafi ætlað að nota skotvopnin til að ógna öðrum.
Nokkur viðbúnaður var vegna málsins, en þó hefðbundinn í ljósi tilkynningarinnar og naut embættið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra á vettvangi í gærkvöld.