Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skjávarpa stolið.

12. desember 2007

Um síðastliðna helgi var brotist inn í húsnæði Menntaskólans á Ísafirði, á Torfnesi. Þaðan var stolið skjávarpa af gerðinni Arpro. Brotist var inn um glugga á kjallara skólans, er snýr að Seljalandsvegi. Skjávarpinn var festur í loftfestingu í einni kennslustofu skólans.

Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar þjófnaðinn og óskar eftir upplýsingum frá öllum þeim sem hafa vitneskju um verknaðinn.