Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skemmdarverk framið á tveimur bátum á Ísafirði.

29. júlí 2004

Seinnipart þriðjudagins 27. júlí sl. voru framin skemmdarverk á tveimur smábátum sem stóðu á uppfyllingunni fyrir sunnan vöruafgreiðslu Eimskips/Flytjanda á Ísafirði. Þar voru rúður í báðum bátunum brotnar, sömuleiðis mælar, siglingaljós og ýmislegt annað sem var um borð í öðrum bátnum.

Vegfaranandi mun hafa séð til fjögurra ungra drengja hlaupa af vettvangi. Lögreglan óskar eftir að fleiri vitni að skemmdarverkunum gefi sig fram. Þá skorar lögreglan á viðkomandi drengi að gefa sig fram við foreldra sína.