Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Skemmdarverk á Seltjarnarnesi

2. nóvember 2026

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa í dag borist tilkynningar um skemmdarverk sem voru unnin á nálægt þrjátíu bifreiðum á Seltjarnarnesi síðastliðna nótt. Bifreiðarnar voru kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd þegar verknaðurinn átti sér stað. Þar var á ferðinni skemmdarvargur (eða skemmdarvargar) sem braut rúður í bifreiðunum.

Þau sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur.petur@lrh.is Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum um mannaferðir á þessum stöðum seint í gærkvöld og nótt.

Þau sem búa á áðurnefndu svæði eða áttu þar leið um á fyrrnefndum tíma eru góðfúslega beðin um að athuga með myndefni hafi þau aðgang að slíku, m.t.t. rannsóknarinnar. Hér er bæði átt við hefðbundnar eftirlitsmyndavélar og eins upptökur úr bifreiðum, en margar bifreiðar hafa nú slíkan búnað innanborðs.