Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Skemmdarverk á bifreiðum

8. október 2026

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist þrjár tilkynningar um skemmdarverk sem voru unnin á þremur bifreiðum í Vesturbæ Reykjavíkur í gær og fyrradag. Bifreiðarnar voru kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Flyðrugranda, Hagamel og Keilugranda þegar verknaðurinn átti sér stað. Þar var á ferðinni skemmdarvargur (eða skemmdarvargar) sem rispaði allar bifreiðarnar með lykli eða einhvers konar áhaldi - svo mikið tjón hlaust af.

Þau sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur.petur@lrh.is Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum um mannaferðir á þessum stöðum á áðurnefndu tímabili.

Þau sem búa á áðurnefndu svæði eða áttu þar leið um á fyrrnefndum tíma eru góðfúslega beðin um að athuga með myndefni hafi þau aðgang að slíku, m.t.t. rannsóknarinnar. Hér er bæði átt við hefðbundnar eftirlitsmyndavélar og eins upptökur úr bifreiðum, en margar bifreiðar hafa nú slíkan búnað innanborðs.