Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjö teknir fyrir ölvunarakstur

9. mars 2010

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, þrír á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 24-59 ára og tvær konur, 23 og 34 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.