Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjö óku undir áhrifum fíkniefna

7. september 2010

Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þetta voru allt karlar en hinir sömu eru allir á þrítugsaldri. Tveir þessara ökumanna voru próflausir, annar hafði þegar verið sviptur ökuleyfi en hinn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.