Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjö líkamsárásir um helgina

16. febrúar 2010

Sjö líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Fjórar þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags en þær voru allar minniháttar. Tvítugur piltur kom við sögu í tveimur þeirra en sá var mjög ósáttur þegar honum var meinaður aðgangur á skemmtistað og lét þá kauði hendur skipta. Á öðrum stað á höfuðborgarsvæðinu handtók lögreglan karl um fimmtugt en sá var vopnaður hnífi og lét dólgslega. Maðurinn var ölvaður og mundi lítt eða ekkert eftir atburðum þegar af honum var runnið.