Þessi frétt er meira en árs gömul
Síbrotamaður úrskurðaður í gæsluvarðhald
27. mars 2009
Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 24. apríl að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem var handtekinn í nótt með þýfi í fórum sínum, hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu vegna auðgunarbrota.