Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Síbrotamaður í fangelsi

21. júlí 2011

Karl á fertugsaldri var stöðvaður við akstur á Bústaðavegi í fyrrakvöld. Maðurinn, sem var bæði próflaus og í annarlegu ástandi, var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Hann var jafnframt grunaður um nokkur innbrot og reyndist sá grunur á rökum reistur. Eftir yfirheyrslu í gær var maðurinn færður í héraðsdóm og síðan í fangelsi. Hann hefur hafið afplánun vegna annarra mála en um er að ræða eftirstöðvar fangelsisvistar.