Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sex undir læknishendur eftir bílslys

30. október 2015

Sex voru fluttir undir læknishendur eftir að harður árekstur varð á Norðurljósavegi í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar kvaðst hafa verið að koma úr Bláa lóninu, hefði hann ekkert borðað í langan tíma og verið lengi í lóninu. Hann hefði verið að detta úr þegar hann ók yfir á rangan vegarhelming og framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Ökumaðurinn og farþegi sem með honum var voru fluttir á Landspítala. Í hinni bifreiðinni voru fjórir, sem allir voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og tveir þeirra áfram á Landspítala. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um meiðsl ökumanna og farþega sem allir voru erlendir ferðamenn.

Fleiri umferðaróhöpp urðu í umdæminu í vikunni, en ekki var um að ræða slys á fólki. Í einhverjum tilvika voru bifreiðirnar þó óökufærar og varð að fjarlægja þær með dráttarbifreið.