Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sex óku undir áhrifum fíkniefna

30. maí 2011

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Tveir voru teknir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru allt karlar á aldrinum 20-25 ára en einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.