Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sex líkamsárásir um helgina

13. október 2009

Sex líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina en fjórar þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranótt sunnudags. Allar voru þær minniháttar og ekki er vitað til þess að fólk hafi orðið fyrir alvarlegum meiðslum. Reyndar nefbrotnaði maður eftir átök á skemmtistað en það eru engin stórtíðindi. Skemmtanhald helgarinnar fór almennt vel fram og flestir fóru ánægðir til síns heima. Meira að segja slagsmálahundarnir tveir sem voru skildir að í miðborginni fóru saman af vettvangi og var engu líkara en þar væru bestu vinir á ferð.