Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Samstarf og innsýn í málefni landamæra

13. nóvember 2025

Dagana 13.–16. október sl. komu þrír fulltrúar frá Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex) í heimsókn til Íslands.

Markmið heimsóknarinnar var að efla samstarf og samráð við stofnanir sem koma að landamæraeftirliti, hælisumsóknum og endursendingum. Fulltrúarnir fengu kynningar á aðstæðum og þeim áskorunum sem Ísland stendur frammi fyrir í málefnum landamæra, s.s. í tengslum við skipulagða brotastarfsemi, áhættur og þróun á sviði landamæraöryggis.

Ísland hefur um árabil tekið virkan þátt í verkefnum Frontex, m.a. með setu í stjórn stofnunarinnar og í gegnum Tækja- og mannauðsbanka stofnunarinnar, þar sem flugvélin TF-SIF frá Landhelgisgæslunni hefur verið helsta framlag Íslands.

Í heimsókninni voru fulltrúar Frontex kynntir fyrir helstu samstarfsaðilum á Íslandi og fóru í heimsóknir til:

  • Flugstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum

  • Landamæradeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu

  • Landhelgisgæslunnar

  • Skattsins- Tollgæslunnar

  • Útlendingastofnunar

  • Ríkislögreglustjóra – Landamæradeildar, Farþegaupplýsingadeildar og Heimferða- og fylgdadeildar

Í heimsóknunum var farið yfir stöðu og umfang verkefna tengdu landamæraeftirliti, hælisbeiðnum og endursendingum, auk innleiðingar á EES kerfinu og stefnumótun í samræmi við nýja sáttmála ESB um innflytjendamál og hælisleitendur. Þá var einnig rætt um stefnu í samþættri landamærastjórnun, viðbragðsáætlanir, menntunar- og þjálfunarmál svo fátt eitt sé nefnt.

Landamæradeild ríkislögreglustjóra vill koma á framfæri sérstökum þökkum til allra þeirra sem tóku á móti fulltrúum Frontex og veittu þeim dýrmæta innsýn í starfsemi og stöðu mála á Íslandi.