Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Samnorræn æfing um hryðjuverkavarnir

22. september 2006

Miðvikudaginn 20. september sl. fór fram samæfing yfirstjórna og sérsveita lögreglu á Norðurlöndunum. Æfingin var haldin í ráðstefnumiðstöð danska ríkislögreglustjórans og heiti hennar var GIMLI en orðið er sótt í norræna goðafræði.

Æfingin var „skrifborðsæfing“ þar sem látið var reyna á samskipti stjórnstöðva ríkislögreglustjóraembættanna með það að markmiði að æfa samvinnu og samhæfingu við möguleg hryðjuverkatilfelli á Norðurlöndunum.

Svíþjóð, Noregur, Finnland, Danmörk og Ísland tóku öll þátt í æfingunni og þátttakendur þurftu að glíma við margvísleg hryðjuverkatilfelli sem mögulega gætu komið upp. Markmiðið var að styrkja samvinnu Norðurlandanna á þessu sviði með því að samæfa hryðjuverkaviðbúnað landanna.