Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Samfélagslöggæsla efld og vopnaútköllum fækkaði frá fyrra ári

24. febrúar 2026

Ný stöðuskýrsla um framkvæmd aðgerðaáætlunar stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum 2025-2026 hefur verið birt.

Skýrslan sýnir að lögreglan hefur gegnt lykilhlutverki í fjölmörgum aðgerðum áætlunarinnar á liðnum mánuðum.

Tengill á skýrsluna

Samfélagslögreglumenn hafa tekið til starfa hjá nær öllum lögregluembættum. Gefin hefur verið út handbók samfélagslöggæslu og fræðsluefni unnið um hlutverk lögreglunnar, afleiðingar afbrota og birtingarmyndir ofbeldis.

Samfélagslögreglumenn um land allt heimsækja leik-, grunn- og framhaldsskóla og sinna fræðslu til foreldra, kennara auk þess að huga að öðrum viðkvæmum hópum. Þau vinna með fagfólki innan skóla og velferðarþjónustu að eftirfylgni mála sem varða áhættuhegðun barna. Þá hafa samfélagslögreglumenn tekið virkan þátt í sýnilegri löggæslu á kvöldin í vettvangsstarfi og á viðburðum og skemmtunum. Flæðiritum um fyrstu viðbrögð fagfólks við kynferðisofbeldi, vopnalagabrotum og heimilisofbeldi hefur verið dreift til skóla og heilsugæslustöðva.

Sérstök mælaborð hafa jafnframt verið þróuð til að halda utan um forvarnir og fræðslu og unnið hefur verið að úrbótum í skráningu slíkra verkefna þvert á embætti.

Sýnileg löggæsla efld og aukin samvinna

Sýnileg löggæsla hefur verið efld með fjölþættum aðgerðum, m.a. með sérstökum aðgerðabílum á kvöld- og næturvöktum um helgar á vegum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og auknu vettvangsstarfi samfélagslöggæslu í samvinnu við þjónustumiðstöðvar og félagsstarf ungs fólks. Vísbendingar voru um fækkun vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra á árinu 2025 frá fyrra ári, einnig í þeim málum þar sem grunaður aðili var undir 18 ára.

Samstarfsyfirlýsingar um afbrotavarnir hafa verið undirritaðar í öllum níu lögregluumdæmunum og formgert samstarf við sveitarfélög, framhaldsskóla, heilbrigðisstofnanir, sýslumenn og aðra lykilaðila á hverju svæði fyrir sig. Fjölgað hefur verið rannsakendum og ákærendum sem sinna ungmennamálum sem hefur stuðlað að styttri málsmeðferðartíma. Viðurlög við vopnalagabrotum hafa verið hert og unnið hefur verið að samræmdu verklagi vegna mála barna sem brjóta af sér hjá lögreglunni.

Áfram verður unnið að framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar árið 2026 en í fjárlögum ársins eru 1.250 milljónir króna til eflingar löggæslu sem munu meðal annars nýtast til samfélagslöggæslu og afbrotavarna.

Stöðuskýrsluna í heild má finna á vef stjórnarráðsins.

Frétt á vef stjórnarráðsins um stöðuskýrsluna

Vefsíða aðgerðahóps stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum