Þessi frétt er meira en árs gömul
Ríkislögreglustjóri gerir samning um aðstoð vegna áfalla og álags í starfi lögreglumanna
30. desember 2008
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur, fyrir hönd sálfræðistofunnar Líf og sál, hafa skrifað undir samning um sálfræðiþjónustu fyrir lögreglumenn vegna áfalla og álags í starfi. Samningurinn tryggir að félagastuðningskerfi lögreglunnar hefur það bakland sem þörf er á þegar upp koma aðstæður þar sem lögreglumenn verða fyrir áfalli í starfi eða þeir ráða ekki lengur við aðstæður vegna uppsafnaðs álags. Sálfræðingarnir munu bæði sinna hópstuðningi við lögreglumenn og einstaklingsþjónustu.