Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Reyndu innflutning á 30 kg. af amfetamíni

17. apríl 2026

Lögreglan Suðurnesjum vinnur nú að umfangsmikilli rannsókn er varðar haldlagningu á rúmum 30 kg. af amfetamíni. Lögreglan handtók tvennt í tengslum við rannsókn málsin sem nú sæta gæsluvarðhaldi.

Málavextir eru með þeim hætti að 12. apríl sl. tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði konu og karl við komu til landsins sem reyndust vera með fíkniefni í farangri sínum. Rannsókn tæknideildar lögreglu leiddi ljós að haldlögð fíkniefni reyndust vera 30,8 kg. af amfetamíni. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði hin handteknu í gæsluvarðhald til 20. apríl nk. og mun lögreglan á Suðurnesjum leggja fram kröfu um framlengingu gæsluvarðhalds í framhaldi.

Rannsókn málsins er á frumstigi og verst lögreglan á Suðurnesjum frekari frétta að svo stöddu.