Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Reyktri ýsu stolið.

2. apríl 2004

Seint í gærkveldi eða í nótt sem leið var brotist inn í húsnæði Hraðfrystihússins – Gunnvarar við Hnífsdalsbryggju. Þaðan var stolið milli 15 og 20 kg. af reyktri ýsu, sem geymd var í kæli og til stóð að selja.

Lögreglunni á Ísafirði var tilkynnt um þennan þjófnað rétt fyrir kl.10:00 í morgun. Hún óskar eftir upplýsingum frá öllum þeim sem gætu gefið upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir á þessu svæði, eða öðrum þeim sem hafa vitneskju um verknaðinn. Þá vill lögreglan hvetja alla þá sem hugsanlega verður boðið vara sem þessi að hafa varann á og hafa samband við lögregluna á Ísafirði, ef grunur vaknar að varningurinn sé illa fenginn. Sími lögreglunnar á Ísafirði er 456 4222.