Rannsókn á eignaspjöllum
8. júlí 2026
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar mál sem varðar eignaspjöll á regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju

Málað var yfir fánann með íslensku fánalitunum síðastliðna nótt. Málið er rannsakað sem hatursglæpur.
Lögregla hefur myndefni undir höndum þar sem tveir aðilar sjást við verknaðinn.
Rannsókn málsins miðar vel en ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.