Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Rannsókn á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík

25. mars 2026

Vegna umfjöllunar Morgunblaðsins og mbl.is um rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku vill embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn.

Rannsókn málsins er annars í fullum gangi og er í algjörum forgangi hjá embættinu. Hún er mjög viðamikil og tímafrek eftir því, en tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar.