Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rán í matvöruverslun – einn handtekinn

9. september 2009

Karl um tvítugt hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á ráni sem var framið í matvöruverslun við Hlemm á ellefta tímanum í gærkvöld. Ekki hefur reynst unnt að yfirheyra manninn vegna ástands hans. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.