Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Punktastaða og yfirlit sviptinga ökuréttinda á Mínum síðum

22. september 2026

Frá og með deginum í dag, þriðjudaginn 22. september, geta einstaklingar nálgast upplýsingar um punktastöðu vegna umferðarlagabrota og sviptingar ökuréttinda inni á Mínum síðum á Ísland.is.

Upplýsingarnar er að finna undir Lög og reglur á Mínum síðum. Þar geta einstaklingar meðal annars séð hvenær brot átti sér stað, hvers konar brot um ræðir, hversu marga punkta brotið gefur og hvenær þeir fyrnast. 

Einstaklingar sem hafa verið sviptir ökuréttindum geta jafnframt séð gildistíma sviptingarinnar og upplýsingar um endurveitingu ökuréttar. 

Með þessu verður auðveldara fyrir einstaklinga að hafa yfirsýn yfir sína stöðu og nálgast mikilvægar upplýsingar um umferðarlagabrot og ökuréttindi á einum stað á Ísland.is.