Óveður á Suðurnesjum í kjölfar appelsínugulrar veðurviðvörunar. – fjöldi útkalla og lokanir vega á svæðinu
26. mars 2026
Aðgerðastjórn Suðurnes var virkjuð klukkan 04:00 í morgun vegna austan og suðaustan hvassviðris sem gekk yfir landið. Áætlað var að versta veðrið myndi ganga yfir milli 8-10 og gekk það nokkurn veginn eftir.

Viðbragðsaðilar sinntu um 50 útköllum á meðan á aðgerðum stóð, sem tengdust meðal annars ófærð, umferðaróhöppum og aðstoð við vegfarendur.
Veðurhæð náði allt að 48 m/s á Reykjanestá þegar verst lét, með lélegu skyggni, skafrenningi og snjókomu sem hafði veruleg áhrif á samgöngur á svæðinu. Eins var sinnt nokkrum útköllum þar sem þakplötur og svalalokanir voru að gefa sig. Öllum helstu samgönguæðum svæðisins var lokað um tíma, þar á meðal Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi, Nesvegi ásamt Suðurstrandarvegi.
Töluverð ófærð skapaðist bæði innanbæjar og á milli þéttbýlisstaða, og voru tíðir árekstrar tilkynntir vegna lélegs skyggnis og erfiðra akstursaðstæðna. Eins var nokkuð um að ökutæki voru skilin eftir í akstursleiðum sem torveldaði snjómokstur.
Söfnunarstaðir voru opnaðir bæði í Vogum og Reykjanesbæ fyrir aðila sem voru fastir á Reykjanesbraut og þá sem biður eftir að leiðir opnuðu.
Nú rétt fyrir kl 13 voru svo allar leiðir opnaðar fyrst með fylgdarakstri og svo opnað að fullu þegar að veður gekk niður. Nesvegur er þó enn í skoðun hjá Vegagerðinni en unnið er að mokstri á honum .
Um 110 aðilar frá Lögreglu, slökkviliði, Rauða Kross Íslands ásamt björgunarsveitum tóku þátt í aðgerðum að þessu sinni og þökkum við sjálfboðaliðum sem tóku þátt sérstaklega fyrir þeirra störf.
Töluvert álag er í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli sem stendur en þó gengur allt vel hjá þeim í innritun og öryggisleit. Hámark umferðar um völlinn verður næstu 60 mínúturnar og fólk beðið um að sýna þolinmæði í flugstöðinni.
Eins þakka viðbragðsaðilar almenningi á svæðinu fyrir að fara eftir fyrirmælum sem gefin voru út.
Aðgerðastjórn er nú að draga saman seglin eftir að veður að aðstæður lagast