Opnunartimi um páskana
1. apríl 2026
Opnunartími í afgreiðslu/móttöku lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu 113 í Reykjavík um páskana verður sem hér segir: 2. apríl 11-19 3. apríl 11-17 4. apríl 11-19 5. apríl 11-17 6. apríl 11-19

Útköllum verður sinnt með hefðbundnum hætti enda er sólarhringslöggæsla á höfuðborgarsvæðinu alla daga ársins og minnt er á að ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112.
Við minnum enn fremur á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.