Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ónæði

28. janúar 2014

Reglulega berast lögreglu tilkynningar þar sem kvartað er undan hávaða. Oftast koma tilkynningar af þessu tagi á borð lögreglu seint á kvöldin eða á næturna, en stundum um miðjan dag. Sú var raunin í gær, en um kaffileytið var kvartað undan hávaða í íbúð í fjölbýlishúsi í vesturborginni. Tilkynnandi greindi frá því að mikil öskur heyrðust frá ónefndri íbúð og svakalegir dynkir að auki. Þrír lögreglumenn voru sendir á staðinn, tilbúnir að skakka leikinn og koma á friði í íbúðinni. Í henni reyndust vera tveir piltar innandyra og voru þeir steinhissa þegar lögreglan bankaði upp á. Spurðir um hávaðann sögðust strákarnir hafa verið í tölvuleik og kannski lifað sig fullmikið inn í leikinn. Þeim var leyft að halda tölvuleiknum áfram, en þó með því skilyrði að spila leikinn af meiri stillingu og með minni tilþrifum.