Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar – og fíkniefnaakstur

16. maí 2017

Lögreglan á Suðurnesjum handtók nokkra ökumenn um helgina vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Tveir þeirra reyndust aka sviptir ökuréttindum og sá þriðji hafði aldrei öðlast slík réttindi. Einn þessara þriggja var með fíkniefni í fórum sínum þegar hann var handtekinn. Þá var einn ökumannanna, grunaður um ölvunarakstur, 17 ára og var því brot hans tilkynnt barnaverndarnefnd.