Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

1. október 2013

Tuttugu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tuttugu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Garðabæ og Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, ellefu á laugardag og tólf á sunnudag. Þetta voru tuttugu og tveir karlar á aldrinum 19-52 ára og tvær konur á fertugsaldri. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.