Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

10. júní 2013

Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tólf þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Garðabæ og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, sjö á laugardag og átta á sunnudag. Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 19-41 árs, og þrjár konur, 19-54 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.