Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

25. apríl 2012

Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær en þeir voru stöðvaðir í Reykjavík og Mosfellsbæ. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 48-65 ára og hafði einn þeirra þegar verið sviptur ökuleyfi. Tveir karlar til viðbótar, 24 og 56 ára, voru stöðvaðir við akstur í umdæminu í gær en þeir höfðu sömuleiðis þegar verið sviptir ökuleyfi.