Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

30. september 2010

Einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í gær. Um var að ræða karl á þrítugsaldri en hann var stöðvaður í austurborginni um miðjan dag. Í nótt var svo einn ökumaður tekinn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sá var stöðvaður í Breiðholti en þar var á ferð rúmlega tvítugur piltur. Sá hafði ekið á bæði umferðarskilti og umferðarstólpa áður en til hans náðist en bíll piltsins var mikið skemmdur eftir ökuferðina.