Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ólögleg sala áfengis

21. september 2010

Kona á miðjum aldri var handtekin í miðborginni um helgina. Grunur leikur á að hún hafi verið að selja landa en í bakpoka hennar fundust allnokkrir brúsar sem innihéldu heimagert áfengi. Umrædd kona var einnig handtekin í miðborginni í sumar en þá var hún við sömu iðju.