Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ökufantur á ofsahraða

28. nóvember 2012

Sautján ára piltur var staðinn að hraðakstri á Reykjanesbraut í Garðabæ seint í gærkvöld en bíll hans mældist á 143 km hraða. Ljóst er að pyngja hans mun léttast verulega vegna þessa, en auk sektarinnar fer pilturinn í akstursbann og verður gert að setjast aftur á skólabekk til að ná réttum tökum á akstrinum. Vonandi kemur hann aftur í umferðina sem betri ökumaður eftir að hafa lært sína lexíu.