Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Öruggt íþrótta- og æskulýðsstarf í sumar

12. júní 2025

Tekið hefur verið saman gagnlegt upplýsingabréf til að stuðla að öruggu og ofbeldislausu íþrótta- og æskulýðsstarfi í sumar á vegum samstarfshóps Barna- og fjölskyldustofu, Embættis landlæknis, Heimili og skóla, Jafnréttisstofu, lögreglunnar, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Neyðarlínunnar, SAFT – Fjölmiðlanefndar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Í sumar taka mörg börn þátt í viðburðum og æskulýðsstarfi víða um land. Mikilvægt er að þeir sem koma að því að skipuleggja og framkvæma slíkt starf séu meðvitaðir um ábyrgð sína, þekki einkenni ofbeldis og viti hvert skal leita ef grunur vaknar um að barn hafi orðið fyrir ofbeldi.

Samstarfshópur á vegum Barna- og fjölskyldustofu, Embættis landlæknis, Heimili og skóla, Jafnréttisstofu, lögreglunnar, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Neyðarlínunnar, SAFT – Fjölmiðlanefndar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs hefur tekið saman gagnlegt upplýsingabréf.

Í bréfinu má finna:

  • fræðsluefni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni,

  • gátlista fyrir ráðningar,

  • leiðbeiningar um öflun upplýsinga úr sakaskrá,

  • og samræmda viðbragðsáætlun æskulýðsstarfs.

Upplýsingabréf um öruggt og ofbeldislaust íþrótta- og æskulýðsstarf

Ef grunur vaknar um brot gegn barni skal ávallt tilkynna til 112, barnaverndar og/eða lögreglu.

Nánari upplýsingar veita:

Kristín Skjaldardóttir – samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is

Ólöf Ásta Farestveit – bofs@bofs.is

Alfa Dröfn Jóhannsdóttir – alfa@samband.is