Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Öruggara Austurland - samstarf og samvinna

10. febrúar 2026

Lögreglan á Austurlandi kynnir stefnu sína fyrir árið 2026 undir yfirskriftinni Öruggara Austurland – samstarf og samvinna.

Áhersla er þar lögð á öryggi og öryggistilfinningu íbúa með markvissri, sýnilegri og forvarnamiðaðri löggæslu sem skipulögð er út frá gögnum og stöðu mála. Samstarf við sveitarfélög, heilbrigðis- og velferðarkerfi, skóla, björgunarsveitir og aðra lykilaðila er skilgreint sem ein af meginstoðum árangurs í löggæslu.

Áhersla er jafnframt lögð á gott og öruggt vinnuumhverfi, skýra verkferla, faglega stjórnun og markvissa þjálfun starfsfólks. Lögreglan á Austurlandi lítur á mannauð sinn sem lykilforsendu þess að geta brugðist hratt, örugglega og af ábyrgð við fjölbreyttum verkefnum.