Ölvunar- og fíkniefnaakstur
28. september 2026
Það var sitthvað að fást við á helgarvaktinni, en m.a. voru tuttugu og fjórir ökumenn teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu.

Tólf þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, átta í Kópavogi, tveir í Mosfellsbæ og einn í Garðabæ og Hafnarfirði. Sex voru teknir á föstudagskvöld, sjö á laugardag, níu á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu og tveir karlar á aldrinum 17-67 ára og tvær konur, 25 og 45 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi.