Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Nýútskrifaðir lögreglumenn

22. júní 2026

Á laugardaginn var, þann 20. júní, brautskráðust 72 lögreglumenn úr lögreglufræði frá Háskólanum á Akureyri við hátíðlega athöfn.

Þetta er næst stærsti árgangur sem brautskráist úr lögreglufræði en sá stærsti var árið 2024 þegar 76 brautskráðust. Árgangurinn er í ár er sá jafnasti um árabil, með tilliti til kynjahlutfalls, sem er ánægjuefni eða 51 prósent karlar og 49 prósent konur.

Veitt voru verðlaun fyrir frábæran námsárangur í diplóma og BA námi en þau fengu Andrea Guðrún Guðnadóttir fyrir diplómu sem Landssamband lögreglumanna veitti og Alexander Kristján Karlsson fyrir BA sem embætti ríkislögreglustjóra veitti. Þá var Hafdís Björg Hrafnkels Hlynsdóttir tilnefnd sem lögreglunemi ársins.

Embætti ríkislögreglustjóra óskar þessum stóra og glæsilega hópi innilega til hamingju með áfangann.