Nýtum vetrarfríið til að ræða netið við börnin
22. október 2026
Vetrarfrí er hafið eða fram undan í mörgum grunn- og framhaldsskólum. Lögreglan hvetur foreldra og forsjáraðila til að nýta samverustundirnar til að ræða netnotkun við börn sín og bendir á Verkfærakistu foreldra á vef Netvís.

Í vetrarfríi verja mörg börn og ungmenni meiri tíma á netinu. Fríið er því gott tækifæri til að kynna sér hvað börnin eru að gera þar og fara saman yfir öryggisstillingar. Börn þurfa að geta treyst því að þau geti leitað til foreldra sinna ef eitthvað kemur upp, og slíkt traust byggist upp í reglulegu og opnu samtali. Í Verkfærakistu foreldra hjá Netvís er að finna:
Samfélagsmiðlar og stillingar:
Yfirlit yfir vinsælustu miðlana, fjölskyldustýringar og öryggisstillingar.
Tölvuleikir og ný tækni:
Hagnýtar upplýsingar um netleiki, hugtök sem ungmenni nota, sem og fræðsla um gervigreind og djúpfalsanir.
Tilkynningar og aðstoð:
Skýrar leiðbeiningar um hvert skal leita og hvernig tilkynna má skaðlegt efni.
Tíu heilræði:
Ráðleggingar sem hvetja meðal annars til gerðar fjölskyldusáttmála um skjátíma, að nota tækin saman til ánægju og að fullorðnir séu góðar fyrirmyndir í eigin skjánotkun.
Verkfærakistu foreldra má nálgast hér: https://netvis.is/foreldrar/
Verkfærakistan styður við vitundarvakningu lögreglunnar og samstarfsaðila um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna. Í október hafa skólar fengið nýjan fræðslupakka í hverri viku á vefnum Stopp ofbeldi! (stoppofbeldi.mms.is)
Börnum og ungmennum sem verða fyrir stafrænu ofbeldi og öllum sem hafa áhyggjur af barni er bent á að 112 aðstoðar í neyð og að Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er opinn þeim sem vilja tala við einhvern.
Vitundarvakningin er unnin af lögreglunni í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Barna- og fjölskyldustofu, Netvís, Heimili og skóla, Kennarasamband Íslands, Neyðarlínuna, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og Taktu skrefið. Fræðsluefnið er að hluta styrkt af Evrópusambandinu og netöryggisstyrk Eyvarar.