Nýtt mælaborð um grunaða einstaklinga
10. apríl 2026
Tölur um einstaklinga sem grunaðir eru um brot samkvæmt gögnum lögreglu hafa verið birtar í mælaborði á vef lögreglu.

Mælaborðið sýnir fjölda einstaklinga sem grunaðir voru um hegningarlaga- eða sérrefsilagabrot á árunum 2019 til 2025.
Gögn lögreglu sýna að um 6.000 einstaklingar voru að meðaltali grunaðir ár hvert fyrir hegningarlaga- og eða sérrefsilagabrot. Meirihluti grunaðra eru karlar, eða um 78%. Kynjahlutfall getur verið mismunandi eftir brotaflokki, sem dæmi eru um 94% grunaðra fyrir kynferðisbrot karlar en innan auðgunarbrota er hlutfall karla 72%. Flestir grunaðra eru í aldurshópnum 25 til 34 ára eða 28%. Um 40% eru grunaðir um fleiri en eitt brot innan hvers árs.
Ríkisfang grunaðra er í 64% tilvika íslenskt og í 36% tilvika erlent yfir tímabilið. Flestir grunaðra, sem eru með íslenskt ríkisfang, eru í aldurshópnum 15 til 19 ára yfir tímabilið en meðal þeirra sem eru með erlent ríkisfang eru flestir á aldrinum 30 til 34 ára.
Ekki er vitað hversu stór hluti erlendra ríkisborgara koma sérstaklega hingað til lands til að fremja afbrot.
Mælaborðið má finna hér.