Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Nýr yfirlögregluþjónn

16. mars 2026

Þóra Jónasdóttir hefur verið skipuð yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mun stýra farsældarsviði þess. Þóra býr yfir áratugareynslu af lögreglustarfinu, en hún hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík árið 1986. Hún vann við almenna löggæslu um árabil og sem varðstjóri ásamt því að leysa af sem aðalvarðstjóri. Þóra varð aðstoðaryfirlögregluþjónn árið 2015 og stýrði frá þeim tíma lögreglustöðinni í Kópavogi til 2024, sem er með varðsvæði Kópavogur/Breiðholt.

Árið 2019 hafði Þóra, ásamt samstarfsfólki sínu á lögreglustöðinni í Kópavogi, frumkvæði að því að hefja og innleiða samfélagslöggæslu sem hefur vaxið mjög og fest sig í sessi og er mikilvægur þáttur hjá embættinu.

Undanfarið hefur Þóra sinnt verkefnum sem snúa að málefnum barna og ungmenna, auk þess að stýra samfélagslöggæslu, svæðisbundnu samráði og eftirfylgni heimilisofbeldismála. Þóra er fyrsta konan sem er skipuð yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og því er um ákveðin tímamót að ræða. Hún mun sitja í framkvæmdastjórn embættisins.

Um leið og við óskum Þóru innilega til hamingju með skipunina væntum við áfram mikils af störfum hennar.