Nýr fræðslupakki lögreglunnar um gervigreind og djúpfölsun
26. október 2026
Þriðji fræðslupakkinn í vitundarvakningu lögreglunnar og samstarfsaðila um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna er kominn út. Hann fjallar um gervigreind og djúpfölsun og er ætlaður til kennslu á miðstigi og unglingastigi grunnskóla og í framhaldsskólum.

Gervigreind er orðin hluti af daglegu lífi barna og ungmenna. Hún getur nýst til margra góðra verka en einnig til að búa til falsað myndefni sem getur valdið þeim sem fyrir því verða miklum skaða. Myndefni sem gert er „bara í gríni“ getur breiðst hratt út og haft alvarlegar afleiðingar.
Samkvæmt óbirtum bráðabirgðaniðurstöðum úr rannsókninni Börn og netmiðlar, sem Fjölmiðlanefnd vinnur í samstarfi við Menntavísindastofnun Háskóla Íslands, hafa um þrír af hverjum fjórum nemendum í 8.–10. bekk og yfir 80% framhaldsskólanema notað gervigreindarverkfæri. Um tveir af hverjum þremur nemendum í 8.–10. bekk og um fjórir af hverjum fimm framhaldsskólanemum telja sig hafa séð djúpfalsaðar myndir eða myndbönd undanfarinn mánuð. Hátt í þriðjungur nemenda í 8.–10. bekk telur sig hafa séð slíkt efni oftar en tíu sinnum á þeim tíma. Því skiptir miklu máli að börn og ungmenni skilji að samþykki á við í öllum samskiptum, líka á netinu, og viti hvert þau geta leitað, hvort sem þau verða sjálf fyrir einhverju eða vita af því að eitthvað hafi gerst.
Fræðslan skiptist í tvo hluta, „Gervigreind og falsað myndefni“ og „Djúpfalsað myndefni“. Í hvorum hluta eru kennsluleiðbeiningar, glærur og verkefni sem kennarar geta nýtt og lagað að sínum nemendahópi. Hægt er að fara yfir efnið á 40 eða 80 mínútum og velja á milli stuttra verkefna og lengri verkefna sem taka um 30 mínútur eða lengur. Í pakkanum eru einnig almennar leiðbeiningar fyrir kennara og yfirlit yfir íslensk lög um kynferðislega friðhelgi sem tengjast efninu.
Símon Geir Geirsson, samfélagslögregla hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kynnir fræðsluna og efni hennar í myndbandi á vefsíðu pakkans. Fræðslupakkinn fylgir í kjölfar pakka um deilingu nektarmyndefnis og kynlífskúgun, sem kom út 6. október sl., og pakka um neteinelti, sem kom út 14. október sl. Síðasti pakkinn í röðinni fjallar um stafrænt öryggi í ungum parasamböndum. Allir pakkarnir eru aðgengilegir á vefnum Stopp ofbeldi! (stoppofbeldi.mms.is) hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Lögreglan hvetur skóla, foreldra og forsjáraðila og annað fagfólk sem starfar með börnum og ungmennum til að kynna sér efnið.
Fræðslupakkann má nálgast hér: https://stoppofbeldi.mms.is/fraedsluefni/gervigreind-og-djupfolsun/
Börn og ungmenni sem verða fyrir stafrænu ofbeldi og öllum sem hafa áhyggjur af barni er bent á að 112 aðstoðar í neyð. Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er opinn þeim sem vilja tala við einhvern.
Vitundarvakningin er unnin af lögreglunni í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Barna- og fjölskyldustofu, Netvís, Heimili og skóla, Kennarasamband Íslands, Neyðarlínuna, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og Taktu skrefið. Fræðsluefnið er að hluta styrkt af Evrópusambandinu og netöryggisstyrk Eyvarar.