Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Ný jafnréttisstefna lögreglunnar tekur gildi

23. febrúar 2026

Ný jafnréttisstefna lögreglunnar fyrir árin 2025–2028 hefur tekið gildi. Stefnan er sameiginleg öllum lögregluembættum landsins og leggur áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika bæði meðal starfsfólks og í þjónustu við almenning.

Jafnrétti er skilgreint víðtækt í stefnunni og nær ekki eingöngu til kynjajafnréttis heldur einnig til kynhneigðar, kynvitundar, þjóðernis, trúar, aldurs og fötlunar. Markmiðið er að lögreglan endurspegli fjölbreytileika samfélagsins og geti þjónað öllum af sanngirni og virðingu.

Sameiginleg markmið allra embætta

Stefnan setur sameiginleg markmið fyrir alla lögregluna. Stefnt skal að því að hlutfall eins kyns (kvenna og karla) verði ekki lægra en 40% í öllum störfum og að hlutfall fólks með kynhlutlausa skráningu aukist. Konur eru um fjórðungur menntaðra lögreglumanna á landsvísu og 61% borgaralegra starfsmanna.

Stefnan er jafnframt jafnalaunastefna lögreglunnar og kveður á um jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf. Öll embætti framkvæma árlega launagreiningu til að fylgjast með kynbundnum launamun.

Meðal sameiginlegra verkefna er að efla þekkingu og færni til að vinna markvisst gegn hatursglæpum og mismunun til að tryggja að öll njóti jafns réttar og verndar. Lögð er áhersla á að einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi verði ekki liðið.

Þótt stefnan sé sameiginleg ber hvert og eitt lögregluembætti ábyrgð á að vinna eigin framkvæmdaáætlun og innleiða stefnuna í samræmi við aðstæður hjá sér. Jafnréttisstofa þarf að samþykkja framkvæmdaáætlun einstakra embætta.

Framkvæmdaáætlun ríkislögreglustjóra samþykkt

Jafnréttisstofa hefur samþykkt framkvæmdaáætlun ríkislögreglustjóra fyrir tímabilið. Meðal áherslna embættisins er fræðsla um hinsegin málefni, kynbundna áreitni og einelti, hatursglæpi og samskipti við fólk með fötlun.

Embættið tekur einnig þátt í innleiðingu landsáætlunar Íslands um konur, frið og öryggi, meðal annars með því að rýna viðbragðsáætlanir með þarfir kvenna og stúlkna í huga. Inngildingarkönnun verður lögð fyrir á árinu og er þetta í annað sinn sem sú könnun er lögð fyrir.