Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Norrænir blóðferlasérfræðingar

8. maí 2009

Boðið var upp á mörg áhugaverð erindi þegar norrænir blóðferlasérfræðingar komu saman til fundar í Reykjavík í vikunni. Blóðferlasérfræðingar gegna mikilvægu hlutverki við rannsókn sakamála en vinna þeirra getur skipt sköpum. Sérstakur gestur ráðstefnunnar var Gillian Leak en hún starfar hjá Forensic Science Service í Bretlandi. Gillian Leak þykir sú fremsta á sínu sviði. Það var lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sem stóð fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Lögregluskóla ríkisins.

Blóðferlasérfræðingarnir ásamt starfsmönnum tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.