Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Níu líkamsárásir um helgina

9. mars 2010

Níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Fimm þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags og voru þær flestar minniháttar. Hinar fjórar líkamsárásirnar áttu sér allar stað í Hafnarfirði. Þrjár teljast líka minniháttar en í þeirri fjórðu voru sjáanlegir áverkar á þolandanum. Sá var bitinn í eyrað þegar hann ætlaði að stöðva slagsmála tveggja manna. Sá sem beitti þessu óþverrabragði var handtekinn en hinn sami gat litlar eða engar skýringar gefið á þessu framferði.