Netsvik í nafni Skattsins
30. mars 2026
Netsvikarar halda uppteknum hætti, en í dag hefur fólki borist tölvupóstur sem líkir eftir pósti frá Skattinum sem fer með einstaklinga á síðu sem líkir eftir island.is Svikasíðan er hér með alvöru síðunni á meðfylgjandi mynd til að sýna hvað þessar síður eru líkar. Þekkir þú muninn? Ef þú skráir þig inn á svikasíðunni þá verða þær upplýsingar notaðar til að komast inn með réttum auðkennum í banka viðkomandi eða aðra viðkvæma staði. Varist alla tengla sem ykkur eru sendir og lesið slíka pósta með tortryggni. Ef farið er á island.is ekki fara í gegnum tengil heldur skráið ykkur beint. Í þessu tilviki er a) síðan fölsk og það sést þegar netslóðin er skoðuð betur „skaatturin.web.app“ en það er ekki augljóst í upphafi og sést ekki í síma.
