Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Netsvik

23. september 2025

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við tölvupósti netþrjóta, sem nú eru að senda út í nafni Ríkisskattstjóra.

Hér er um svik að ræða, en með póstinum er verið að reyna að færa fólk inn á hlekk sem er til að opna rafræn skilríki. Við vörum við þessum pósti, en hann á að fara sömu leið og allir aðrir svikapóstar – eða beinustu leið í ruslið.

Lögreglan hvetur fólk í þessum tilfellum, sem öðrum, að vera athugult og kynna sér m.a. ávallt tölvupóstfang sendanda. Netfangið noreply@smartijcc.com er t.d. með öllu ótengt Skattinum. Sé ýtt á hlekkinn birtist enn fremur ekki síðan island.is. Og loks má nefna að heimilisfang Skattsins í tölvupósti netþrjótanna er rangt.