Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Nágrannavarsla í Ásahverfi í Garðabæ

20. nóvember 2008

Íbúar í götum sem liggja að Seljuási og Hlíðarási í Ásahverfi í Garðabæ mættu á fund sem haldinn var í gærkvöld um nágrannavörslu í hverfinu. Nágrannavarslan er samstarfsverkefni Garðabæjar og svæðisstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í Garðabæ. Nágrannavarslan felst m.a í því að íbúar taka höndum saman um að vernda heimili sín og nánasta umhverfi fyrir óboðnum gestum. Góð mæting var á fundinn og íbúar áhugasamir um verkefnið. Þetta er annað hverfið í bænum sem tekur upp virka nágrannavörslu. Ætlunin er að útvíkka verkefnið til fleiri hverfa í Garðabæ og er næsti fundur fyrirhugaður fyrstu vikuna í desember.