Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Nafn mannsins sem lést

27. mars 2013

Maðurinn sem lést í árekstri jeppabifreiðar og dráttarvélar á Skeiðavegi þann 25. mars s.l. hét Ellert Þór Benediktsson til heimilis að Laufskálum 9 á Hellu. Ellert var fæddur þann 30. mars 1967. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvo syni, 17 og 20 ára. Ellert starfaði sem dýralæknir á Dýralæknamiðstöðinni á Hellu.