Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Mynd unnin með gervigreind fór í umferð vegna mistaka

31. júlí 2025

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðst einlæglega afsökunar á að hafa dreift mynd sem breytt hafði verið með notkun gervigreindar. Myndin var send út í tengslum við yfirstandandi rannsókn á eldsneytisþjófnaði í borginni.

Umrætt myndefni gaf ekki rétta mynd af útliti einstaklinganna sem óskað var upplýsinga um og hefur myndin þegar verið fjarlægð af öllum miðlum lögreglu. Réttri mynd verður í kjölfarið komið til fjölmiðla og þess óskað að þeir fjarlægi myndina sem átt hafði verið við eða komi því ellegar skýrt til skila að hún sé fölsuð.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leggur áherslu á að almenningur geti treyst öllu því sem hún sendir frá sér. Nauðsynlegt hefði verið að sannreyna myndefnið með fullnægjandi hætti áður en því var dreift í tengslum við rannsókn lögreglu. Við skoðun er augljóst að öryggismyndavél í þessari fjarlægð hefði ekki getað skilað jafn skýrum myndum. Þetta þekkir lögreglan vel sem vinnur með slíkt myndefni á hverjum degi.

Verklag embættisins verður tekið til endurskoðunar í kjölfarið á þessu máli með það fyrir augum að það endurtaki sig ekki.

Ljóst er að tilkoma gervigreindar hefur í för með sér aukna hættu á ýmis konar fölsunum, falsfréttum og röngum sakargiftum og þurfa allir að hafa varann á gagnvart slíku athæfi. Þar er lögreglan ekki undanskilin.