Minkar í Mosfellsdal – lögreglan óskar upplýsinga
29. júlí 2026
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn hennar á tildrögum þess að fjöldi minka slapp frá Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun. Talið er að óprúttinn aðili/aðilar hafi verið að verki og því leitar lögreglan upplýsinga um mannaferðir í Mosfellsdal frá því um miðnætti og þar til málið var tilkynnt klukkan rúmlega sjö í morgun.

Ekki er ósennilegt að sá eða þeir sem að þessu stóðu hafi verið akandi og lagt ökutæki sínu á svæðinu í aðdragandanum. Mörg ökutæki eru búin myndavélum og því viðbúið að myndefni frá áðurnefndum tíma sé að finna í fórum einhverra. Einnig er biðlað til forsvarsmanna öryggismyndavéla sem kunna að vera á umræddu svæði að athuga með myndefni vegna málsins. M.a. vegna umferðar um Þingvallaveg, Hlaðgerðarkotsveg, Reykjahlíðarveg, Æsustaðaveg, Æsustaðaland, Hraðastaðaveg, Helgadalsveg og Dalsbúsveg.
Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um slíkt á netfangið 0617@lrh.is og gefa þar upp bæði nafn sitt og símanúmer. Í framhaldinu verður haft samband við viðkomandi. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í síma 444 1000.